frost
kuldinn smýgur í gegnum útvegginn
mistökin hringsnúast í höfðinu
skelf undir teppinu og stari
á ekki neitt
af hverju
leyfði ég þér
að koma svona fram við mig
(ein)
andvaka
aftur
þetta einbreiða rúm er alveg nóg
en það væri notalegt
að hafa einhvern við hliðina á sér
stari á vigtina
hlusta á þig
furða þig upphátt á holdafari
skilur engan útundan
ekki einu sinni sjálfa þig
reyni að renna gömlu buxunum upp
kannski næst
lystarlaus
að missa þyngd af vanlíðan gerir greinilega fullt
fyrir útlitið
Myndir eftir Herdísi Hlíf eru fáanlegar hér á Uppskeru listamarkaði.